Ungfrú Ísland 2006

Velkomin á bloggsvæði stelpnanna í Ungfrú Ísland 2006

13.05.2007 17:31:30 / Dóra

Hittingurinn 18. maí!

Jæja, ég ætla að vona að þið séuð allar búnar að taka frá næstkomandi föstudagskvöld, þann 18. maí... enda fenguð þið hellings tíma til að gera það ;) en hittingurinn verður sumsé heima hjá mér (Fífuvellir 18, Hfj) og mæting eigi síðar en ca. 8 - hálf 9. Allar sem vilja koma með eitthvað gotterí... hvort sem það er kaka, nammi, nasl, ís eða eitthvað annað sniðugt sem ykkur dettur í hug... ég var að pæla í að setja salsa inn í ofn þannig að ef einhver vildi bjóða upp á doritos þá væri það auðvitað perfect! Síðan er best að hver kemur með sína drykki (óáfenga að sjálfsögðu því eins og allir vita þá drekka fegurðardrottningar ekki áfengi ;) og nóg er af kæliplássi þannig að Veigar frændi þarf ekki að sitja úti í hlýjunni! Og eftir að við höfum gúffað í okkur kræsingum og veigum þá er bara um að gera að skella sér eitthvað út á lífið og dansa þetta af okkur! Endilega þær sem lesa að láta boðskapinn berast því ég er því miður ekki með e-mailið hjá öllum... vonast til að sjá sem flestar... (og líka þær sem segjast mæta en beila svo... hmmm) kveðja Dóra

» 4 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 12:32:59 / fatou

hittingur!

við vorum að spá í að reyna að halda hitting 18.maí... þá eru allir búnir í prófum og það er nægilega langur tími til að taka frá daginn;)

en við vorum ekki komnar með neitt plan, væri eflaust skemmtilegast að geta hist heima hjá einhverri og bara halda gott partý:)

en hvernig lýt ykkar annars á þetta?? endilega komiði með tillögur um hvað þið viljið gera og ef einhver vill taka á móti hópnum þá væri það líka frábært:)


» 23 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 23:02:14 / fatou

til hamingju stelpur!

Jæja..

Það voru 3 undankeppnir haldnar um síðustu helgi og er ekki tilvalið að fara yfir úrslit helgarinnar:) 

Á föstudaginn voru 2 keppnir, Ungfrú Suðurnes og Ungfrú Norðurland. 

Í Ungfrú Suðurnes sigraði Karen Lind Tómasdóttir en keppnin var haldin í Stapanum í Reykjanesbæ.

 

 2.sæti: Irmý Ósk Róbertsdóttir

3.sæti: Kristín Þórdís Þorgilsdóttir 

Birna Bolladóttir sigraði keppnina um Ungfrú Norðurland sem haldin var í Sjallanum á Akureyri.

 2.sæti: Arna Dögg Gunnlaugsdóttir

3. sæti: Elsa Guðrún Jónsdóttir 

Ungfrú Austurland var haldin í Egilsbúð á Neskaupssstað á laugardaginn og var það Brynja Dröfn Þórarinsdóttir sem sigraði.

 Ungfrú Austurland: Brynja Dröfn Þórarinsdottir

Netstúlkan og spurtstúlkan: Alexsandra TómasdóttirLjósmyndafyrirsætan: Helga Jóna Guðmundsdóttir

Vinsælasta stúlkan: Elísabet Maren Guðjónsdóttir

Tigi stúlkan: Hallveig Karlsdóttir 

Brynja og Helga Jóna verða fulltrúar Austurlands í keppninni um Ungfrú Ísland 2007 þann 25.maí nk. 

Síðan langar mig bara að óska öllum þessum fallegu stelpum til hamingju með frábæran árangur:) 

Ps. Afsakið lélegu myndirnar.. ungfruisland.is er með einhverja stæla og vill ekki leyfa mér að save-a myndir:(

Kv, Fatou

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 21:55:53 / ungfru

Undankeppnir á fullu!

Sælar skvísur!

 Núna eru 2 keppnir búnar og mjög efnilegir keppendur á leið í Ungfrú Ísland 2007.

Svona fór Ungfrú Vesturland 2007:

1. sæti: Agla Harðardóttir
2. sæti: Helena Rúnarsdóttir
3. sæti: Fríða Ásgeirsdóttir

Allar víst æsku vinkonur,  þetta les maður í Mogganum 8) 

Sætu sætu!!! Ungfrúrnar 2006 + Herra Ísland

Næst... Suðurland

Svona fór Ungfrú Suðurland 2007:

1. sæti: Rebekka Pálsdóttir
2. sæti: Linda Baldursdóttir
3. sæti: Stefanía Þorsteinsdóttir

Vantar alveg fleiri myndir frá Ungfrú Suðurland keppninni, er ekki einhver sem veit um fleiri myndir þaðan?

 Jæja við þurfum svo að fara hittast! Hvernig haldiði að næstu keppnir fara?  Núna næst er Ungfrú Suðurnes á laugardaginn.

 Kv. Bergþóra


» 9 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 15:21:30 / Jóa

hittingur 9 feb a sander kleineberg

Okkur datt i hug ad hafa ekki sameiginlegan ungfru rvk og ungfru isl hitting aftur og vaeri ekki tilvalid ad vid skelltum okkur a dj sander kleineberg thann 9 . Hvernig hljomar thad? Endilega commentid um thetta stelpur;) kv joa

» 18 hafa sagt sína skoðun

30.12.2006 17:20:53 / ungfru

Ungfrú og Herra hittingur!

Sælt veri fólkið og gleðilega hátíð!

Hannes, Aldís og Ásdís plönuðu þennan frábæra hitting, fyrir bæði Herra Ísland og Ungfrú Ísland + Reykjavík. Hittumst á Caruso að borða og svo var partý hjá Hannesi í Hafnarfirði. Búið var að skreyta allt með jólapappír og jólaseríum... voða kósý. Við mættum nú ekki öll, en góður hópur samt. Eftir smá tjútt og spjall hjá fór allur hópurinn niður í bæ. Ég, Jóna, Helga, Sunna og Fatou fórum á Vegó þar sem allt var pakkað af fólki eins og vanalega. Eftur stuttan stund var allur hópurinn kominn á Hverfisbarinn. Þar var dansað, drukkið, sungið og spjallað, hvort sem það var drukkið vatn eða eitthvað sterkara 8).  Þemað var RAUTT eins og sjá má á myndunum!

Ég ætla bara að láta myndirnar tala sínu máli.

Ég og Jóna með þemað á hreinu!
Ásdís, Hannes og Aldís...skemmtinefndin
Darri og Einar
Jæja... verið að svíkjast undan rauða litnum! Hehehe..
Jóa og Fatou
Ég og Aldís
Fatou og Helga
Rautt rautt rautt......
Hressir...
Sætar
Tjúttí tjútt....

Fleiri myndir eru í linknum: BH - Ungfrú og Herra hittingur

Takk fyrir árið sem er að líða og ég hlakka til að sjá ykkur sem oftast á nýju ári!
Kveðja,
Bergþóra Hallbjörnsdóttir.

» 8 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 19:12:20 / aldisarnar

Gleðileg jól

vil óska öllum gleðilegra jóla og hafiði það gott yfir hátíðirnar stelpurnar mínar.

Takk fyrir skemmtilegar stundirnar sem við höfum átt saman á liðnu ári og vonandi verða þær en fleiri á því komandi!

hlakka til að sjá ykkur flestar í Partyinu þann 29. það verður pottþétt rosa stuð;)

Jólakveðja Aldís Arnar


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 01:20:44 / fatou

partý, partý!!

Sælar stúlkur:)

þá er komið að því að hafa fyrsta ungfrú ísland/ ungfrú reykjavík/ herra ísland hittinginn og við Hannes og Ásdís hittumst fyrr í kvöld til að skipuleggja hittinginn.

Planið er að fara út að borða kl. 18.00 þann 29. desember á Carruso og hittast síðan heima hjá Hannesi þar sem verður þvílíkt partý langt fram eftir nóttu.. við verðum búin að skreyta pleisið og jóla/áramótastemmning verður í hámarki! Þema kvöldsins: Allir verða að vera í einhverju RAUÐU!!!

Við vonum að sjálfsögðu að sem flestir mæti og endilega láta vita!! Sérstaklega er nauðsynlegt að láta vita hverjir ætla að koma með að borða í síðasta lagi á föstudaginn því við ætlum að panta borð með góðum fyrirvara:)

En þetta er eitthvað sem enginn ætti að láta sig vanta á því það er náttúrulega alltaf gaman þegar við stelpurnar hittumst og hvað þá þegar búið er að plana svona dagskrá;) Þannig að ALLIR að taka daginn frá:!::!::!:

Kv, Fatou, Ásdís og Hannes:)


» 13 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 19:07:25 / fatou

linda komst í úrslit!!

þessi fegurðardís hérna komst í 30 manna úrslit í miss model of the world 2006 í kína núna á dögunum!!!

linda var líka valin miss best skin:)

til hamingju sæta mín:)


» 11 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 21:41:47 / fatou

takk fyrir síðast

sælar elskurnar...

heyrðu ég vildi bara þakka aldísi, ásdísi, dóru og jóhönnu fyrir síðast.. ekki voru það víst fleiri úr þessum hópi sem mætti heim til mín í annars mjöööög vel heppnaðan hitting... very very gaman;)

jú og grétu líka því ég hitti hana eeeeeiiiiiturhressa í bænum hehehehe;)

en vonandi verðum við með hitting sem fyrst aftur.. held ég taki það þó ekki að mér að plana hann hehe:lol:

hafið það gott skvísur..

fatou


» 8 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 02:31:57 / fatou

hittingur 2. des:)

sælar skvísur:)

langaði að hafa smá hiting fyrir okkur á laugardaginn heima hjá mér því mér finnst svo obboðslega gaman að hitta ykkur skvísurnar:)

segi að við tökum helgina með trompi og skemmtum okkur svolítið saman:)

en ég er búin að senda ykkur meil með heimilisfanginu og nánari upplýsingum þannig að ég vona svo sannarlega að sem flestar sjá sér fært til að mæta:D

hlakka til að sjá ykkur,

kv, fatou


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 18:27:17 / aldisarnar

...

hæhæ

 takk æðislega fyrir síðast! Það var mjög gaman að sjá ykkur allar stelpur:*

En eg er búin að setja nokkrar myndir inná netið, eru undir "myndir" :) og þið sem tókuð e-h myndir endilega setjið þær inná síðuna, ég tók nefnilega svoo fárar!

En hlakka til að hitta ykkur aftur sætu..:*

kv Aldís Arnar


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 17:10:20 / aldisarnar

Herra Ísland 2006

jæja þá er þetta allt saman komið á hreint:)

Ég er búin að panta borð fyrir okkur á Oliver kl hálf 7 á fimmtudeginum.. Þar sem ég var ekki með pottþéttann fjölda í matinn pantaði ég fyrir 12-15 manns:D og já við fáum e-h hóp-matseðil vegna þess hversu margar við erum, en hann er víst alveg fínt sögðu þau á Oliver, verðum bara að treysta því!
Og stelpur sem voru ekki búnar að ákveða hvort þær kæmu í matinn endilega látið mig vita þegar það er komið á hreint, helst fyirr fimmtudaginn=)

Síðan er ég búin að fá miða á Herra Ísland fyrir okkur og við erum nánast allar að fara :D verður gaman að hittast allar aftur! Læt ykkur bara fá miðanna á Oliver og þær sem koma ekki í matinn fá miðanna fyrir utan Brodway, keppnin byrjar kl 10..

Hlakka til að hitta ykkur allar stelpur:* Sjáumst..

Kveðja Aldís Arnar(",)


....

» 13 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 14:44:00 / ungfru

Hittingur?

hæhæ stelpur!
takk alveg æðislega fyrir síðast:)
Ég var að velta fyrir mér hvort að þið væruð ekki til í e-h hitting þegar Herra Ísland verður?? fyrst við fáum nú allar frímiða.. Veit reyndar ekki hvort að þetta verður um helgi en það skiptir ekkert öllu! Getum farið út að borða eða gert e-h skemmtiegt áður og farið niður í bæ á eftir=) Endilega commentið og segjið hvað ykkur finnst og komið með hugmyndir:D
Sjáumst vonandi sykurpúðar! :*
P.s. Setti myndir inná síðunna frá síðasta hittingi!

Kv. Aldís Arnar

» 9 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 23:54:00 / ungfru

Magni og Dilana voru æði!!!

Jæja Stelpur! Takk fyrir síðast! 

 

 

Á laugardagskvöldið hittumst við stelpurnar heima hjá mér.  Allar komu með eitthvað gúmmílaði og horfðum við saman á Miss World, þar sem hún Ásdís Svava okkar var að keppa.  Því miður komst hún ekki áfram. 

 

Eftir keppnina (sem byrjaði klukkan sex) spjölluðum við um daginn og veginn, rosalega gaman að hittast svona og heyra hvað er að frétta af hvor annarri.  Gaman að heyra hvernig var hjá Fatou í Kína og sjá Aldísi dökkhærða!  Við vorum eitthvað um 12 því það eru svo margar utanlands eitthvað að bardúsa.  Þegar klukkan var að líða tólf fórum við á Broadway á Magna og Dilönu!!! Vá var troðið, það var strax pakkað!  Við skemmtum okkur konunglega, stóðum uppá stólum í fínu pinnunum okkar (það var svo troðið).  Sumar okkar voru svo djarfar að troða sér fremst en þar var ekki mönnum bjóðandi og voru þær dregnar uppá svið svo þær yrðu ekki undir, ég ætla ekki að nefna nein nöfn hér! Þegar líða tók á ballið fórum við niður í bæ.  Oliver var staðurinn um tíma, en kvöldið endaði á Vegamótum, allavegna hjá mér.  

Sigrún, Sunna og Fatou
María og Ég
Jóna, Aldís og Linda mjög hentungt að vera með stóran spegil. 
Ég, Lisbet og Eva.
Fatou og Elli sæti.
Ég, Jóna, Eva, Aldís og María allar uppá stólum!!!
Linda, Fatou, Aldís og Eva á dansgólfinu!
Eva, ég, Linda og Fatou....dansi dans... 

Við verðum að gera þetta aftur stelpur, það er ekki svo erfitt að skipuleggja hitting.  

Ég á eftir að setja inn link þar sem þið getið skoðað myndirnar sem ég tók um kvölið, geri það bráðum, set nokkrar hér á síðuna.  

 

 

 

Kveðja,

Bergþóra Hallbjörnsdóttir


» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan